Lífið í Skjaldarbjarnarvík 1922 - 1935
Frásögn Matthíasar Péturssonar um
"Ábúendur í Skjaldabjarnarvík 1922 - 1935, Pétur Friðriksson og Sigríður Elín Jónsdóttir" - klikkið á titilinn til að lesa greinina
Greinin birtist í Strandapóstinum (33) 1999-2000.
Grein Matthíasar hefst á heillandi lýsingu á ferðinni norður, að sunnan og heim í Reykjarfjörð og Skjaldarbjarnarvík. Lesandinn finnur eftirvæntinguna að komast heim og sér kennitleitin birtast ett af öðru; Bjarnafjörður, Balarnir, Kaldbaksvíkin, Veiðileysufjörður, Reykjarfjörður, Gjögur, Trékyllisvík, Ingólfsfjörður, Drangaskörð, Geirhólmsnúpurinn og Hornvík. Hvert og eitt er eins og kær vinur sem birtist aftur eftir langa fjarveru og vekur gleði í hjarta og sál. Fyrir okkur sem þekkjum til, brosum við blítt því við þekkjum leiðina og eftirvæntinguna, og fyrir þau okkar sem ekki hafa farið þessa leið, þá er þetta leiðarvísir á ferðina heim.
Í greinni lýsir Matthías staðháttum, landslagi og náttúru og fer hann jafnvel alveg aftur á landnámsöld enda var Skjaldabjarnarvík landnámsjörð og fræðir lesandann um sögu jarðarinnar frá þeim tíma. Hann segir frá nágrönnum og veðráttu og lífi og lifibrauði fjölskyldunnar í þessum afskekkta bæ á Stöndum.
Textinn á síðunni Skjaldarbarjarvík er tekinn úr þessari grein, en textinn er styttur, klipptur til og púslaður til að henta betur því birtingarformi sem heimasíðan er. Eins og grein Matthíasar um líf Péturs og Sigríðar í Hraundal, þá er þessi grein mun ítarlegri en textinn á síðunni Skjaldabjaranrvík og gefur mynd af víðara samhengi lífs þeirra þar. Greinin er fróðleg og heillandi lesning og vel þess virði fyrir frændfólk að lesa, þó að sagan hafi verið sögð í styttra máli á síðunni Skjaldarbjarnarvík.