Lífið í Skjaldarbjarnarvík 1922 - 1935
Frásögn Friðriks Péturssonar
"Landsins forni fjandi í heimsókn" - klikkið á titilinn til að lesa greinina
Greinin birtist í Strandapóstinum (34) 2001.
Í greininni segir Friðrik frá eftirminnilegum vetri í Skjaldabjarnarvík, þegar hafísinn birtist morgun einn og hvítur og kaldur ísinn fyllti víkur, voga og haf þannig að hvergi sást í auðan sjó og háir og tignarlegir borgarísjakar blöstu við í fjarlægð. Það er gaman fyrir okkur frændfólkið að lesa um upplifun Friðriks og systkinanna af þessu hrímkalda náttúruundri veturinn 1930-1931 og kynnast þannig betur aðstæður og ævintýrum Skjaldabjarnarvíkur. Þennan vetur er ísinn kom var Friðrik 7 ára, Jóhannes 9 ára, Guðbjörg 11 ára, Guðmundur 14 ára en Matthías og Jón voru ennþá smápeyjar, aðeins 5 og 2 ára. Það var því mikil lífsreynsla fyrir þau eldri sem gátu vappað niður í fjöru til að virða þennan "fjanda" fyrir sér.
Greinin er þó meira en bara lýsing á upplifun krakkana á hafísnum því Friðrik ræðir einnig um veturinn á Stöndum og hvaða áhrif hinn "landsins forni fjandi" getur haft á sjálfsþurftarbúskap strandamanna. Hann greinir líka frá hafískomu hér áður fyrr og afleiðingarnar sem slíkar heimsóknir höfðu í för með sér. Ekki allt slæmt þó, því Jón bóndi í Ávík og félagi hann gengu út á ísinn, hjuggu gat og lögðu krók fyrir hákarl. Og viti menn, hákarlninn beit á agnið og Jón náði í verðmæta hákarlalifur sem seldist dýrum dómum hinum megin við hafið í stórborginni Kaupmannahöfn.