Lífið í Skjaldabjarnarvík 1922 - 1935
Frásögn Friðriks Péturssonar
"Óvæntur gestur" - klikkið á titilinn til að lesa greinina
Greinin birtist í Strandapóstinum (32), 1998
Þó svo að greinin fjalli um óvæntan og skemmtilegan gest þá er hliðarsagan eigi að síður athyglisverð fyrir okkur frændfólkið. Óvænti gesturinn var Jóhannes Magnússon skáld og fór um hann ævintýralegan blæ því hann lifði lífinu á eigin forsendum, flakkaði á milli bæja og lenti í ýmsu á ferðum sínum. Hliðarsagan sem sögð er í greininni er daglega lífið í Skjadlabjarnarvík, þessu litla, afskekkta koti úr þjóðbraut, norður á Stöndum. Friðrik lýsir ekki bara hversdagslegu vetrarlífi fjölskyldunnar heldur líka landfræðilegri eingangrunin og illfærri ferðaleið til og frá Skjaldabjarnarvík. Sérstaklega er minnistæð lýsing Friðriks á kvöldi sem var ekkert frábrugðið öðrum vetrarkvöldum og spennu barnanna yfir ævintýralegri gestakomunni.