Pétur og Sigríður og fjölskylda
  • Forsíða
  • Hraundalur
  • Skjaldabjarnarvík
  • Reykjarfjörður
  • Hellissandur
  • Efstasund
  • Börnin
  • Blogg

Lífið í Reykjarfirði 1935 - 1953

Frásögn Matthíasar Péturssonar um
"Búskaparár Péturs Friðrikssonar og Sigríðar Elínar Jónsdóttur í Reykjarfirði árin 1935 - 1953" - klikkið á titilinn til að lesa greinina
Greinin birtist í Strandapóstinum (34) 2001.

Textinn á síðunni Reykjarfjörður er tekinn, klipptur, styttur og púslaður úr þessari grein en greinin sjálf gefur víðtækari mynd af Pétri og Sigríði og búskap þeirra í Reykjafirði með því að setja líf þeirra í stærra samhengi. Í greininni er lýsing á staðháttum, landslagi og náttúru í firðinum og í Árneshreppi og fjallað um búskaparhætti og veðurfar, en veður er stór áhrifavaldur norður á Stöndum. Matthías reifar einnig á sögu búskapar í Reykjafirði og fjallar um lífið og sveitarstjórnarmál í Árneshreppi, Kaupfélag Strandamanna og barnafræðslu og skólagöngu í sveitinni, síldarverksmiðjurnar í Djúpuvík og i Ingólfsfirði og sitthvað fleira. Þannig fær lesandinn víðtækari skiling á lífi og tilveru Péturs, Sigríðar og fjölskyldu í ljósi samtímana þeirra.

Þetta er skemmtileg og fróðleg grein og er að vissu leyti líka saga Árneshrepps á þeim tíma, gullöldinni sem hófst með komu síldarverksmiðjunnar og undanhaldinu mikla sem kom í lok síldaráranna þegar síldin bregst og margir bregða búi og flytja á mölina.

Proudly powered by Weebly