Efstasund - 1962 og til æviloka
Pétur og Sigríður flytja til Reykjavíkur
Þegar heilsan tók að bila, þá sérstaklega hjá Pétri, fluttu þau frá Hellissandi til Reykjavíkur, þá var Pétur 75 ára og Sigríður 69 ára. Keyptu þau sér litla íbúð við Efstasund 100 og bjuggu þar á meðan þau gátu séð um sig sjálf. Þar áttu þau fallegt heimili og áttu þar friðsælt ævikvöld í nálægð barna og barnabarna sinna.
Hrönn skrifar um ömmu sína og afa
Amma var einkar félagslynd, greind og fróðleiksfús. Sem ung stúlka var hún tíðum nefnd Strandasól, því hún þótti afar falleg og var hún það með sér alla ævi. Skólaganga hennar var eins og almennt gerðist þá, ekki löng. Þrá sinni til meiri þekkingar svalaði hún með lestri góðra bóka. Hennar mesta yndi var að ræða efni og innihald þeirra.
Það var einmitt í Efstasundinu sem ég kynntist afa og ömmu. Þá var dagur að kvöldi komin í lífi þeirra, en mitt rétt að byrja. Ég varð strax auðfúsugestur á heimili þeirra og vandi því komur mínar til þeirra nær daglega í mörg ár, enda voru þau með eindæmum barngóð og gestrisin. Afi var farinn að heilsu síðustu æviárin. Þá hjúkraði amma honum af mikilli kostgæfni, alúð og nærfærni, að seint mun gleymast þeim er til þekktu. Þá var amma mín á níræðisaldri. Þegar afi minn lést 1979, níutíu og tveggja ára, voru kraftar hennar á þrotum. Eftir lát hans dvaldi hún um tíma hjá dóttur sinni og tengdasyni og allra síðustu árin var hún á elliheimilinu Grund. (Úr minningargrein sem Hrönn Jóhannesdóttir skrifaði um Sigríði í Morgunblaðið 06.04.1984 - klikkið á titilinn til að lesa greinina) |
Minningar Péturs
Það er ótrúlegt en satt, að hún kunni vel við sig þarna (í Hraundal). Hún lét sér allt nægja, sem ég gat veitt henni, og kvartaði aldrei, þó að húsakynnin væru hrörleg og köld. Kannski var hún jafnánægð og þeir, sem nú búa við allsnægtir...Vissulega steig ég eitt óafmánalegt gæfuspor í Hraundal þegar ég festi mér hana.
Pétur um konu sína Sigríðir í viðtalinu "Forlögin fresta má en fyrir þau komast eigi"
Viðtal við Pétur - Ingibjörg Guðjónsdóttir tók viðtal við Pétur í júní 1969 fyrir Sunnudagsblað Tímans
Í viðtalinu spjallar Ingibjörg við Pétur um líf hans norður á Ströndum. Segir Pétur frá æsku sinni og hvernig það varð úr að hann tók Hraundal á leigu. Lengst staldra þau þó við örlagavaldann stóra, páskahretið sem tók flest hans fé og svo ferðina yfir jökulinn þegar hann flutti fjölskyldu og þær skepnur sem enn tórðu, norður í Skjaldabjarnarvík.
"Forlögin fresta má en fyrir þau komast eigi" (Klikkið á titilinn til að lesa greinina)
Viðtalið við Pétur sem birtist í Sunnudagsblaði Tímans 12 júní, 1966

Minningar Sigríðar
Mamma minntist mjög oft á æskuheimili sitt. Einkum voru henni hugleiknar þær stundir
er hún sinnti bústörfum með föður sínum
og systkinum, og eins við að sinna kindum og heyskaparstörfum, en skýrastar af
æskuminningum hennar voru ferðir þeirra Bolvíkinga norður að Horni til eggja og
fuglatöku.
Úr minningargrein Friðriks um móður sína, Sigríði Elínu Jónsdóttur í Morgunblaðinu, 06.04.1984
Móðir mín hafði gaman af félagsskap fólks. Vel er líklegt að hún hefði orðið liðtæk í kvennabaráttunni ef þau mál hefðu verið á döfinni þá, en staða húsfreyjunnar í sveitinni veitti ekki mörg tækifæri í því efni.
Meðan foreldrar míni mínir bjuggu í Hraundal var margt ungt fólk að taka við á bæjunum í kring, á Laugalandi, Skjaldfönn og á Ármúla sat Sigvaldi Kaldalóns læknir og tónskáld. Unga fólkið tók sig stundum til, lagði á gæðingana og spretti úr spori og heimsótti kunningjana. Minningar um þessa skemmtilegu daga yljuðu hjarta Sigríðar í ellinni.
Úr grein Jóhannesar "Sigríður Elín Jónsdóttir 90 ára" úr Árnað heilla í Tímanum 21.12.1983
Ég veit það móðir mín að hugur þinn dvelur löngum á Stöndum. Þar ólst þú upp hjá góðum foreldrum, giftist traustum manni, lifðir manndómsárin, þar fæddust börnin og þú annaðist þau í uppvextinum, varst samtíða góðu fólki og hefur notið þess að vera til og glíma við vandann og reyndist líka fær um að leysa úr þeim þrautum sem lífið lagði þér á herðar

Minningargreinar um Sigríði (Klikkið á titilinn til að lesa greinina)
eftir Friðrik Pétursson og Hrönn Jóhannesdóttur
Birtist í Morgunblaðinu 6 apríl, 1984